Sæll Róbert!
Ég vil, sem fyrrum ritstjóri og skopmyndahöfundur á pistlasíðunni þinni Pressunni-punktur-is, bjóðast til að koma aftur til starfa sem ritstjóri, í þetta sinn sem aðal-ritstjóri og þá virkur í ritstjórn.
Nú er það nokkuð ljóst að mín er hvergi getið í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis (ég leitaði — tvisvar), og ekki að því gert skóna að mér hafi verið mútað með óvenju drjúgum lánum frá Kaupþingi fyrir það eitt að fjalla á ógagnrýninn hátt um útrásina og bankana sem ritstjóri viðskiptablaðs. Enda var ég ekki ritstjóri viðskiptablaðs. Fékk ekki einusinni lán. Var ekki einusinni með stjórnarmenn og forstjóra stórfyrirtækja á speed-dial. Á ekki síma með speed-dial.
Einnig hef ég ekki staðið í því að fegra verk þeirra stjórnmálamanna og samtaka sem deilt er á í skýrslunni.
Með hliðsjón af þessu tilkynni ég þér hér með að ég er laus til starfa nú þegar og vel í stakk búinn til að fjalla um skýrsluna sem og önnur málefni í samfélaginu, og þarf hvorki ég né þú að bera kvíðboga fyrir viðbrögðum almennings við ritstjóraskiptunum.
Ég var, að líkindum, ráðinn á Pressuna og gefið þar ritstjóratitill til að veita vefsíðunni nauðsynlegt kredit meðal þess hóps almennings sem sá sér fært að fara á torg í mótmæli og tjá sig um mál útrásarvíkinga og stjórnmálamanna. Fólks sem virðist hafa haft mjög mikið til síns máls skvt. niðurstöðum skýrslu Rannsóknarnefndar. Orðstír minn meðal þessa þjóðfélagskima er óskaddaður, svo mikill sem hann hefur þá verið. Því hef ég enn úr miklu að spila og akkur á ritstjórn.
Ég ætla ekki að láta eins og kjáni hér í þessu bréfkorni og neita því alfarið að ég myndi í starfi ritstjóra vera falur og öðrum genginn í að veita gott veður fyrir rétt verð. Þar eð að ég veit ekkert hverjir muni gefa sig á tal við mig um slíkt og hvaða verð þeir kæmu til með að bjóða. Hinsvegar heiti ég því skýlaust að ég myndi gefa þér og öðrum starfsmönnum hlutdeild í þeim sporslum sem ég fengi, og játa allt slíkt væri það á mig borið. Enda kann ég ekki að ljúga almennilega. Ég myndi heldur ekki nenna að taka við lánum, ég tek bara við beinhörðum peningum — eða teiknimyndabókum úr Nexus.
Ég á líka fullt fullt af vinum sem langar mjög svo að skrifa hrópmerkta pistla á síðum vefsins þar sem höggvið er á báðar hendur og mokað yfir eitt meðan bent er á annað. Þeir eru sumir ógeðslega frægir og þó einhverjir séu með öllu óskrifandi einstaklingar þá ætti ég að geta hreinskrifað amk einn pistil á viku í þeirra nafni.
Með von um skjót svör,
Henrý Þór Baldursson, fyrrv. ritstjóri Pressunnar