Henrý Þór

Í dag birti ég pólitíska skopmynd mína á pólsku, sem viðbragð við ummælum Ásgerðar Jónu Flosadóttur frkvstj Fjölskylduhjálparinnar í Fbl í gær og stefnu þá sem hún innleiddi með einni röð fyrir útlendinga og aðra fyrir innfædda. Sem og til að sýna samstöðu með Pólverjum sem verða fyrir rasisma.


Skopmyndin er reyndar þýdd með Google Translate þar sem ég fann engan til að þýða hana fyrir mig í tíma. En ég held allavega að þetta sé fyrsta pólitíska skopmyndin í íslenskum miðli sem birtist eingöngu á pólsku.


Titill skopmyndarinnar útleggst sem „Ísland er bara bóla.“ Svo eru borin saman þrjú atvik í sögu þjóðanna, Íslands og Póllands. Árið 1984 hafi Íslendingar talið sig þá sterkustu í heimi, sterkasti maður heims ársins 2008 hafi verið Mariusz Pudzianowki. Árið 1987 hafi Íslendingar talið sig þá fegurstu í heimi, árið 2009 hafi fegurðardrottning Reykjavíkur verið kjörin Magdalena Dubik. Árið 2007 hafi Íslendingar talið sig þá ríkustu í heimi, árið 2009 hafi Pólland verið eina ríkið á Evrópusambandssvæðinu sem sýndi fram á hagvöxt.

Loka myndin er svo af Ásgerði, og textinn við hana svohljóðandi „Svo, ef þið rekist á rasista hér, takið það þá ekki til ykkar. Það er ekki almenn afstaða Íslendinga. Málið er bara að stundum, eins og alltaf, verður fólk tapsárt.“ Í talblöðru er Ásgerður látin segja „Mismunun er ekki rasismi!“